Ferill 158. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 158 . mál.
Ed.
342. Breytingartillaga
við frv. til l. um breyt. á l. nr. 10/1988, um ráðstafanir í ríkisfjármálum og lánsfjármálum á árinu 1988.
Frá minni hl. fjárhags- og viðskiptanefndar (HBl, JúlS, EKJ).
Við 1. gr. Við bætist nýr stafliður, d, svohljóðandi:
Við 3. mgr. bætist tveir nýir töluliðir svohljóðandi:
5. Lán sem tekin hafa verið frá og með 10. mars 1988 eða tekin verða vegna skuldbreytinga fyrirtækja í útflutningsgreinum.
6. Lán sem tekin hafa verið frá og með 10. mars 1988 eða tekin verða vegna smíði, endurbóta eða viðhalds á fiskiskipum, enda sé verkið unnið hér á landi.